Sjól Mótin Félagið Sjóstöng

Aðalmót Sjóskips 26.-27. apríl 2024

Aðalmót sem er 30 ára afmælismót Sjóskips 26.-27. apríl 2024.

Skráning á mótið

Veiðimaður tilkynnir þátttöku til formanns þess félags sem hann er aðili að. Formenn senda síðan staðfestingu til Sjóskips um fjölda keppenda, sveitaskipan ofl.

Tilkynning frá formanni hvers félags þarf að berast formanni Sjóskip fyrir kl. 20:00 – 14. apríl á .

Ef það eru einhverjar spurningar varðandi mótið er hægt að hafa samband við Marinó formann Sjóskips í síma 844-1003 eða senda tölvupóst á .

Keppendur og/eða sjóstangaveiðifélög eru vinsamlega beðin um að leggja mótsgjald kr. 15.000,- inná reikning Sjóskips kt. 490894-2099 banki 0552-26-002831 fyrir 18:00 sunnudaginn 21. apríl.

Ef það eru spurningar varðandi greiðslu á mótsgjaldi þá mun Skúli gjaldkeri Sjóskips geta aðstoðað ykkur í síma 824-1983 sem og formaður.

Hvorki verður boðið uppá nesti né drykkjarvatn, fólk skal koma með sér.

DAGSKRÁ

Fimmtudagur 25. apríl

Kl. 18:00 Mótssetning verður rafræn þar sem birtar verða upplýsingar um skipan trúnaðarmanna, röðun niður á báta, skipstjórar og fleira á heimasíðu Sjól.

Föstudagur 26. apríl

Kl. 05:30 Mæting á bryggju hjá löndunarkrönum. Mótsgögn fyrir keppendur afhend á bryggju ásamt öðrum gögnum fyrir trúnaðarmenn.

Kl. 06:00 Brygjuveiði. Er 30 min. svo er haldið til veiða veiði timinn er 7 klst. frá því að veiðafæri eru slökuð í sjó. veitingar verða í boði við hafnarhúsið þegar er búið að landa ú hverjum bát er fólki velkomið að fara upp að hafnarhúsinu og fá sér léttar veitingar.

Aflatölur fyrri dags verða birtar á heimasíðu Sjól www.sjol.is.

Laugardagur 27. apríl

Kl. 05:30 Mæting á bryggju.

Kl. 06:00 Haldið til veiða á ný það verður brygjuveiði í sirka 30 mín svo verður haldið á miðin. Veiðitími eru 7 tímar frá því að veiðafæri hitta sjó.

Lokahóf

Lokahóf verður haldið í Jónsbúð að Akursbraut 13 niður við höfnina á Akranesi húsið opnar 19:30

Gilbert úrsmiður Vesturröst Cintamani