Sjól Mótin Félagið Sjóstöng

Aðalmót SjóSnæ 10.-11. maí 2024

Stjórn SjóSnæ býður ykkur velkomin á opna SjóSnæ mótið helgina 10.-11. maí 2024.

Þetta er þriðja aðalmót sumarsins sem telur til íslandsmeistara SJÓL 2024.

Lokaskráning í síðasta lagi föstudaginn 3. maí fyrir kl. 20:00.

Fimmtudagur 9. maí

Kl. 20:00   Mótssetning í Björgunarsveitarhúsinu Von á Rifi.

Veitingar í boði SjóSnæ.

Bryggjuveiði verður útskýrð nánar á mótssetningunni.

Föstudagur 10. maí

Kl. 05:00   Mæting á smábátabryggju Ólafsvík

Kl. 06:00   Bryggjuveiði

Kl. 06:15   Haldið til hafs frá Ólafsvík

Veitt í 7 klst. frá fyrsta rennsli. Veiðarfæri dregin upp, haldið til hafnar.

Kl. 14:30   Kaffi í íþróttahúsinu, Engihlíð 1 þegar komið er í land.

Úrslit dagsins birtast á sjol.is og með nesti á laugardeginum.

Laugardagur 11. maí

Kl. 05:30   Mæting á smábátabryggju Ólafsvík.

Kl. 06:00   Bryggjuveiði.

Kl. 06:15   Haldið til hafs frá Ólafsvík.

Veitt í 6 klst. frá fyrsta rennsli. Veiðarfæri dregin upp, haldið til hafnar.

Lokahóf í Björgunarsveitarhúsinu Von á Rifi. Húsið opnar kl. 19:30 og dagskrá hefst Kl. 20:00.

Keppnisgjald

Keppnisgjald kr. 15.000 -. Stakur miði á lokahófið kr. 5.000 -.

Hægt er að greiða inná bankareikning 0190-26-007525 kt. 700597-2889.

ATHUGIÐ AÐ ENGINN POSI ER TIL AÐ TAKA VIÐ GREIÐSLU

Innifalið fyrir keppendur í mótsgjaldi: Mótsgögn – Nesti fyrir báða keppnisdaga – Kaffi og léttar veitingar í íþróttahúsinu á föstudag eftir veiði. – Miðar í sund báða dagana – Aðgangur fyrir lokahóf SjóSnæ.

Þátttökutilkynningar

Félagar í SJÓL tilkynni þátttöku sína til síns formanns í síðasta lagi kl. 20:00 föstudaginn 3. maí.

Formenn tilkynna svo þátttöku félaga sinna til Sigurjóns Helga í síma: 844-0330 eða netfang:

Kær kveðja, Stjórn SjóSnæ

Gilbert úrsmiður Vesturröst Cintamani