Sjól Mótin Félagið Sjóstöng

Aðalmót SJÓR 7.-8. júní 2024

is.m.wikipedia.org/wiki/Mynd:Patreksfjörður.jpg

UPPFÆRT: Móti frestað. Sjá nánar hér.

Stjórn SJÓR býður ykkur velkomin á aðalmótið okkar á Patreksfirði, 7.–8. júní 2024.

Þátttökutilkynningar

Félagar í SJÓL tilkynni þátttöku sína til síns formanns og munið að taka fram ef þörf er á aukamiða fyrir gest á lokahóf.

Formenn tilkynna svo þátttöku félaga sinna til Kjartans Gunnsteinssonar, í síma 858 6219 eða .

Lokaskráning í síðasta lagi föstudaginn 31. maí, kl. 20:00

Mælst er til að keppendur millifæri þátttökugjaldið um leið og þeir skrá sig.

515-14-405483, kt. 580269-2149 – ENGINN POSI Á STAÐNUM

Keppnisgjald er 15.000 kr. Stakur miði á lokahófið er 5.000 kr.

Veitingar

Ekki verður boðið upp á gos og vatn um borð í bátum.

Skipstjórar og aðstoðarfólk þeirra fá nesti.

Okkur þætti vænt um að vita hvort einhver vill afþakka veitingar á mótsetningu á fimmtudag eða aflatölu-súpu á föstudag.

Gisting

Áhugasamir sem ekki hafa tryggt sér gistingu geta prófað að hafa samband við Þorgerði, hún mun glöð veita ykkur allar upplýsingar sem hún getur í síma 691 0554.

DAGSKRÁ

Fimmtudagur 6. júní

Kl. 20:00   Mótssetning í Félagsheimili Patreksfjarðar, Aðalstræti 107.

Veitingar í boði SJÓR og formaður fer yfir helstu atriðin.

Föstudagur 7. júní

Kl. 5:00   Mæting á bryggju
Kl. 6:00   Bryggjuveiði í 15 mínútur
Kl. 6:15   Haldið til veiða

Veitt verður í 7 klst. frá fyrsta rennsli. Veiðarfæri dregin upp og haldið til hafnar. Trúnaðarmenn passa uppá veiðitíma.

Eftir veiði geta gestir yljað sér á heitu kaffi/kakói og fengið sér smá bita með. Það  verður á sama stað og undanfarið – fyrir aftan Fiskmarkaðinn.

Kl. 19:00   Súpa og brauð í félagsheimilinu og farið yfir aflatölur dagsins, sem verða birtar á sjol.is.

Laugardagur 8. júní

Kl. 05:30   Mæting á bryggju
Kl. 06:00   Bryggjuveiði í 15 mínútur
Kl. 06:15   Haldið til veiða

Veitt verður í 6 klst. frá fyrsta rennsli. Veiðarfæri dregin upp og haldið til hafnar. Trúnaðarmenn passa uppá veiðitíma.

Lokahóf í Félagsheimili Patreksfjarðar, Aðalstræti 107.

Kl. 19:30   Húsið opnað
Kl. 20:00   Formleg dagskrá hefst

Boðið verður uppá aðalrétt og eftirrétt, gos og vatn á staðnum. Ef gestir vilja drekka eitthvað sterkara er þeim velkomið að koma með sínar „guðaveigar“.

Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest.

Kær kveðja, stjórn SJÓR

Gilbert úrsmiður Vesturröst Cintamani