Sjól Mótin Félagið Sjóstöng

Aðalmót SJÓNES 19.-20. júlí 2024

mynd: is.m.wikipedia.org/wiki/Mynd:Neskaupstadur_fall.jpg

Kæru veiðifélagar

Þá er komið að Sjóstangaveiðimóti Sjónes 2024 sem gefur stig til Íslandsmeistaratitils.

DAGSKRÁ

Fimmtudagur 18. júlí

Mótið verður sett og mótsgögn afhent kl. 20:00 á Hótel Hildibrand. Matarmikil súpa og brauð í boði Sjónes.

Föstudagur 19. júlí

Lagt úr höfn við vigtarskúrinn kl. 6:00 og veitt á hafnarsvæðinu í 15 mínútur, og síðan er haldið til veiða og veitt í 6 klst. frá fyrsta rennsli. Veiðarfæri dregin upp, kaffi og brauð á bryggjunni við löndun.

Kl. 20:30 farið yfir tölur dagsins, í Beituskúrnum.

Laugardagur 20. júlí

Lagt úr höfn við vigtarskúrinn kl. 6:00 og veitt á hafnarsvæðinu í 15 mínútur, síðan haldið á miðin og veitt í 6 tíma frá fyrsta rennsli, svo haldið til hafnar.

Tekið verður á móti keppendum, mökum,og skipstjórum, með kaffi,og brauði á löndunar stað við vigtarskúrinn.

Kl. 19:30 opnar Hótel Cliff kl. 20:00 hefst lokahófið með þriggja rétta veislumáltíð, og verðlaunaafhending.

Fyrirkomulag

Frítt í sund báða daganna

Í mótinu verða blandaðar sveitir karla og kvenna.

Mótsgjald er 15.000.- krónur, og innifalið miði á lokahófið, aukamiði kostar 5.000 kr.

ATHUGIÐ: Keppendur sjá sjálfir um nestið sitt og drykki um borð.

Þátttaka tilkynnist til formanns þíns félags, sem mun svo tilkynna okkur um þátttöku þína, í síðasta lagi fimmtudaginn 11. júlí.

Matthías ( sími: , 848 7259 ) Kári (sími 860 7112 )
Netfang

Gilbert úrsmiður Vesturröst Cintamani