Sjól Mótin Félagið Sjóstöng

Íslandsmót SJÓR 20. - 21. júní 2025

is.m.wikipedia.org/wiki/Mynd:Patreksfjörður.jpg

Stjórn SJÓR býður ykkur velkomin á landsmót sitt í sjóstangaveiði á Patreksfirði, 20.–21. júní 2025.

Þátttökutilkynningar

Félagar í SJÓL tilkynni þátttöku sína til síns formanns og munið að taka fram ef þörf er á aukamiða fyrir gest á lokahóf.

Formenn tilkynna svo þátttöku félaga sinna til formanns SJÓR, í síma 858 6219 eða .

Lokaskráning í síðasta lagi föstudaginn 13. júní, kl. 20:00

Mælst er til að keppendur millifæri þátttökugjaldið um leið og þeir skrá sig.

515-14-405483, kt. 580269-2149 – ENGINN POSI Á STAÐNUM

Keppnisgjald er 15.000 kr. Stakur miði á lokahófið er 5.000 kr.

Ath. Ekki verður boðið upp á gos og vatn um borð í bátunum.

Skipstjórar og aðstoðarfólk þeirra fá nesti.

Gisting

Áhugasamir sem ekki hafa tryggt sér gistingu geta prófað að hafa samband við Þorgerði, hún mun glöð veita ykkur allar upplýsingar sem hún getur í síma 691 0554.

DAGSKRÁ

Fimmtudagur 19. júní

Kl. 20:00     Mótssetning í Félagsheimili Patreksfjarðar, Aðalstræti 107.

Veitingar í boði SJÓR. Mótsgögn afhent og formaður fer yfir helstu atriðin.

Föstudagur 20. júní

Kl. 5:00     Mæting á bryggju
Kl. 6:00     Bryggjuveiði í 15 mínútur
Kl. 6:15     Haldið til veiða

Veitt verður í 7 klst. frá fyrsta rennsli. Veiðarfæri dregin upp og haldið til hafnar. Trúnaðarmenn passa uppá veiðitíma.

Eftir veiði geta gestir yljað sér á heitu kaffi/kakói og fengið sér smá bita með. Bryggjukaffið verður í Sigurðarbúð, húsi björgunarsveitarinnar.

Aflatölur verða síðan birtar á sjol.is

Laugardagur 21. júní

Kl. 05:30     Mæting á bryggju
Kl. 06:00     Bryggjuveiði í 15 mínútur
Kl. 06:15     Haldið til veiða

Veitt verður í 6 klst. frá fyrsta rennsli. Veiðarfæri dregin upp og haldið til hafnar. Trúnaðarmenn passa uppá veiðitíma.

Lokahóf í Félagsheimili Patreksfjarðar, Aðalstræti 107.

Kl. 19:30     Húsið opnað
Kl. 20:00     Formleg dagskrá hefst

Boðið verður uppá aðalrétt og eftirrétt, gos og vatn á staðnum. Ef gestir vilja drekka eitthvað sterkara er þeim velkomið að koma með sínar „guðaveigar“.

Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest.

Kær kveðja, stjórn SJÓR

Aflatölur: mot.sjol.is - Sjókort: kort.sjol.is - Gátlistar: sjol.is/gatlisti - Veiðireglur: sjol.is/reglur

Gilbert úrsmiður Vesturröst Cintamani