Sjól Mótin Félagið Sjóstöng

Landsmót SJÓNES 18.-19. júlí 2025

mynd: is.m.wikipedia.org/wiki/Mynd:Neskaupstadur_fall.jpg

Kæru veiðifélagar

Þá er komið að Sjóstangaveiðimóti Sjónes 2025 sem gefur stig til Íslandsmeistaratitils.

DAGSKRÁ

Fimmtudagur 17. júlí.

Mótið verður sett og mótsgögn afhent kl. 20:00 á Hótel Hildibrand. Matarmikil súpa og brauð í boði Sjónes.

Frítt í sund báða dagana

Föstudagur 18. júlí.

Lagt úr höfn við vigtarskúrinn kl. 6:00 og veitt á hafnarsvæðinu í 15 mínútur, og síðan er haldið til veiða og veitt í 6 klst. frá fyrsta rennsli. Veiðarfæri dregin upp, kaffi og brauð á bryggjunni við löndun. Tölur dagsins á sjol.is

Laugardagur 19. júlí.

Lagt úr höfn við vigtarskúrinn kl. 6:00 og veitt á hafnarsvæðinu í 15 mínútur, síðan haldið á miðin og veitt í 6 tíma frá fyrsta rennsli, svo haldið til hafnar.

Tekið verður á móti keppendum, mökum,og skipstjórum, með kaffi og brauði á löndunarstað við vigtarskúrinn.

Kl. 19:30 opnar Hótel Cliff kl 20:00 hefst lokahófið með þriggja rétta veislumáltíð, og verðlaunaafhending.

Í mótinu verða blandaðar sveitir karla og kvenna.

Mótsgjald er 15.000.- krónur og miði á lokahófið innifalið, frítt fyrir maka.

Reiknings númer fyrir mótsgjald kt :. 5205 002270 banki : 1106 26 000161

ATHUGIÐ: Keppendur sjá sjálfir um nestið sitt og drykki um borð.

Þátttaka tilkynnist til formanns þíns félags, sem mun svo tilkynna okkur um þátttöku þína, í síðasta lagi föstudaginn 11. júlí.

Matthías (sími: 848-7259 ) - netfang:

Kári (sími 860-7112 )

Aflatölur: mot.sjol.is - Sjókort: kort.sjol.is - Gátlistar: sjol.is/gatlisti - Veiðireglur: sjol.is/reglur

Gilbert úrsmiður Vesturröst Cintamani